Geir H. Haarde sagði rétt í þessu í Silfri Egils Ríkissjónvarpsins að ríkisstjórnin muni mögulega leggja fram frumvarp annað kvöld til að fá lánsheimildir fyrir erlendu láni.

Á dögunum gerði Seðlabanki Íslands gjaldeyrisskiptasamninga við þrjá aðra seðlabanka á Norðurlöndunum upp á 500 milljónir evra hvern samning.