Framtakssjóður Íslands (FSÍ) sleit í dag viðræðum við evrópska fjárfestingasjóðinn Triton um kaup á erlenda hluta Icelandic Group. Ákveðið hefur verið að selja verksmiðjurekstur Icelandic í Bandaríkjunum og framleiðslustarfsemina í Kína í opnu söluferli. Icelandic mun áfram eiga verksmiðjurnar í Evrópu, sölukerfið um allan heim og skráð vörumerki félagsins, að því er kemur fram í tilkynningu frá FSÍ.

Fréttatilkynning frá Framtakssjóði íslands:

„Framtakssjóður Íslands hefur átt í viðræðum við fjárfestingarsjóðinn Triton um kaup á verksmiðjurekstri Icelandic Group undanfarnar vikur. Stjórn Framtakssjóðs Íslands hefur á fundi sínum í dag hafnað tilboði Triton í þessar eignir og er viðræðum lokið.  Jafnframt hefur verið ákveðið að selja verksmiðjurekstur Icelandic í Bandaríkjunum og framleiðslustarfsemina í Kína í opnu söluferli. Icelandic mun áfram eiga verksmiðjurnar í Evrópu, sölukerfið um allan heim og skráð vörumerki félagsins.

Markmið Framtakssjóðsins með eignarhaldi sínu á Icelandic er tvíþætt; annars vegar að hámarka virði eigna félagsins og hins vegar að tryggja hagsmuni íslensks sjávarútvegs með aðgangi að mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.

„Icelandic er gott fyrirtæki og eðlilega mikill áhugi á því. Við tilkynntum í haust að við værum að leita að meðfjárfesti í félaginu og í kjölfarið komu nokkrir aðilar fram. Hugmyndir Triton voru einfaldlega þannig að við töldum rétt að skoða þær ítarlega en endanleg niðurstaða okkar var að hafna tilboði þeirra. Við munum nú einbeita okkur að fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu félagsins. Við munum selja verksmiðjureksturinn í Bandaríkjunum og framleiðslustarfsemina í Kína og þær eignir verða kynntar fyrir áhugasömum kaupendum í opnu söluferli á næstunni,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands.“