Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarpaði fyrr í vikunni ráðherraráðstefnu um öryggi fiskiskipa í Torremolinos á Spáni. Þar undirrituðu um 50 þjóðir samning um að þau hygðust fullgilda Höfðaborgarsamþykktina, alþjóðlegan samning um öryggismál stærri fiskiskipa, 24 metra og lengri.

Ísland fullgilti samþykktina árið 2013 hefur í mörg ár þrýst á að þessi samningur verði fullgiltur. Frá þessu er greint á vef stjórnarráðsins.

Yfir 30 ráðherrar víðsvegar að úr heiminum mættu til að  fjalla um ávinninginn af því að innleiða samþykktina. Dæmi um slíkan ávinning eru færri banaslys, bætt vinnuskilyrði, minni mengun sjávar, aukin vernd heimskautasvæða, efling fullnustuaðgerða til að berjast gegn ólögmætum, ótilkynntum og stjórnlausum fiskveiðum og loks minni áhætta fyrir þá sem sinna leitar- og björgunarþjónustu.

Að ráðstefnunni lokinni tóku  fulltrúar Íslands þátt í sérstökum vinnuhópi IMO, ILO og FAO fund um ólögmætar, ótilkynntar og stjórnlausar fiskveiðar.

Sigurður Ingi sagði í ræðu sinni að Ísland hafi verið eitt af fyrstu ríkjum heims til að innleiða alþjóðlegar reglur um öryggi fiskiskipa. Reynslan hafi sýnt að á Íslandi hafi náðst eftirtektarverður árangur sem önnur lönd gætu horft til. Banaslysum á sjó hafi fækkað um 90% á árunum 1970 til 2010, og slysum fækkað úr 203 í 21. Ráðherra hvatti aðrar þjóðir til að fullgilda Höfðaborgarsamþykktina. Ísland hefði borið gæfu til að fara í gegnum síðustu ár án mannskaða á sjó og nefna mætti að engin slík slys hefðu átt sér stað síðustu þrjú og hálft ár. Slíkt væri ómetanlegur árangur á heimsmælikvarða.