Lögmannsstofan Fulltingi slf., sem sérhæfir sig í þjónustu á sviði skaðabóta og vátryggingaréttar, flytur aðsetur sitt frá Suðurlandsbraut að Höfðabakka 9,  6. janúar nk. Fulltingi og Reitir fasteignafélag hafa í þessu skyni undirritað langtíma leigusamning um tæplega 900 m2 húsnæði á 7. og efstu hæð hússins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fulltingi.

„Efsta hæðin á Höfðabakka 9 er nýuppgerð og innréttuð að nútímakröfum um vinnuhollt starfsumhverfi. Endurnýjun skrifstofugarðanna við Höfðabakka er langtíma þróunarverkefni sem unnið er með áherslu á vistvæna byggð,“ er einnig tekið fram í tilkynningunni.