Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Evrópska Seðlabankans og Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lenda í Aþenu í dag til að meta árangur Grikkja við að lækka halla ríkissjóðs og skuldir ríkisins. Þetta kemur fram í frétt BBC um málið.
Búist er við að gríski forsætisráðherrann biðji um aukinn frest til að borga tilbaka lán ríkissjóðs en fyrrnefndir aðilar munu taka ákvörðun um hvort Grikkir munu fá 31,5 milljarð evra, sem er síðasti hluti 130 milljarða evra neyðarpakka sem samið var um í mars.
Ljóst er að Grikkir eru á eftir áætlun hvað varðar að skera niður ríkisútgjöld og að lækka skuldir, meðal annars þar sem hagkerfið hefur dregist hraðar saman en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt áætlun átti að lækka halla ríkissjóði niður í 3% fyrir árslok 2014 en á síðasti ári nam hallinn 9% af landsframleiðslu ársins. Búist er við að ákvörðun um veitingu síðasta hluta neyðarlánanna liggi fyrir í september.