Fyrirlesarar frá Google, Plain Vanilla og Samsung verða með erindi á haustráðstefnu Advania í september. Íþróttaforkólfur Magnús Scheving setur hana og síðan hefst ballið með 27 fyrirlestrum á þremur fyrirlestralínum. Þetta verður 20. haustráðstefna fyrirtækisins, sem haldin verður í Hörpu.

Á ráðstefnunni flytja 16 erlendir sérfræðingar frá stofnunum og fyrirtækjum á borð við FBI, Microsoft, Google, Cisco, EMC, Citrix og Samsung erindi um strauma og stefnur í tækni og upplýsingaöryggi. Þaulreynt fagfólk úr atvinnulífinu hér heima og erlendis greinir frá því hvernig það hefur nýtt upplýsingatæknina til að leysa úr krefjandi verkefnum eða í nýsköpun.

Að þessu sinni tala fjórir lykilfyrirlesarar. Þeir eru Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla Games, Carlos Dominguez, aðstoðarforstjóri hjá Cisco, Magnús Scheving frumkvöðull og Jesper Stormholt sem stýrir Google Enterprise á Norðurlöndunum.

Á sérstöku Expó-svæði munu svo nokkur fyrirtæki í upplýsingatækni sýna nýjustu lausnir sínar og græjur.

Í tilkynningu frá Advania er haft eftir forstjóranum Gesti G. Gestssyni:

„Markmiðið með Haustráðstefnuninni er að miðla því sem efst ber í upplýsingatækni á hverjum tíma og benda á leiðir til þess að ná ávinningi og samkeppnisforskoti. Í fyrra héldum við okkar fjölsóttustu Haustráðstefnu til þessa en þá fengum við um níu hundruð gesti á ráðstefnuna enda var uppselt á hana og rúmlega það. Haustráðstefnan er því fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem stærsti viðburðurinn ársins í upplýsingatækni. Hún er einstakt tækifæri fyrir stjórnendur og sérfræðinga að fá beint í æð það sem er að gerast í hinum síbreytilega heimi upplýsingatækninnar.“