Obama heilsar Beyonce við embættistöku sína.
Obama heilsar Beyonce við embættistöku sína.
© european pressphoto agency (european pressphoto agency)

Frönsk slúðurblöð fullyrða að Barack Obama og söngkonan vinsæla Beyonce eigi í ástarsambandi. Eitt þeirra frönsku blaða sem segir frá þessu er blaðið Le Figaro og hefur bandaríska sjónvarpsstöðin E! sagt frá málinu með vísun í þá frétt.

Pascal Rostain, franskur hasarljósmyndari, segir að það sé eitthvað stórkostlegt í gangi á milli þeirra tveggja. „Ég get fullvissað ykkur um að allur heimurinn mun tala um þetta,“ segir hann í samtali við Le Figaro.

Tímaritið Gala, sem er lýst sem franskri útgáfu af bandaríska tímaritinu People, fullyrðir líka að forseti Bandaríkjanna og Michelle Obama eiginkona hans hyggist skilja.

Beyonce hefur sjálf vísað ásökununum á bug og eftir að gengið var á ljósmyndarann vegna frásagnar hans viðurkenndi hann að um ekki væri fótur fyrir þeim.