Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík, hafa ákveðið að vera með aðalfund miðvikudaginn 30 maí 2012 og hefst fundurinn kl 18, í Fjölbrautarskóla Suðurnesja.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá á dögunum vill stjórn stofnfjáreiganda fara í mál í við fyrrverandi yfirmenn, stjórn og endurskoðendur Sparisjóðsins í Keflavík.

Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður samtakana ætlar að mæta á fundinn og kynna hvernig staðið yrði að væntanlegum málaferlum.
Þá verða reikningar félagsins einnig kynntir og ýmis önnur hagsmunarmál rædd.