Á fundi landsstjórnar Framsóknarflokksins sem haldinn var í gærkvöldi var tekin ákvörðun um að halda vorfund miðstjórnar flokksins um mánaðarmótin maí/júní þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, hefur snúið úr leyfi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra.

Í færslunni segir Eygló að framkvæmdastjóra flokksins var falið að senda út fundarboð á flokksmenn með nánari upplýsingum á næstunni um fundinn.