Svonefnd stjórnendasvik (e. CEO-fraud) hafa upp á síðkastið orðið æ algengari segir á vef Samtaka atvinnulífsins og hafa þau því fengið tvo öryggissérfræðinga til að ræða um málið á morgunfundi á föstudag.

Þessi tegund svika felast í að fjársvikamenn villa á sér heimildir sem stjórnendur fyrirtækja og senda trúverðug fyrirmæli á starfsmenn þeirra um að millifæra fé með hraði.

Ísland er eitt netvæddasta land heims og hér á landi eru nánast öll bankaviðskipti rafræn. Íslensk fyrirtæki hafa því orðið fyrir barðinu á stjórnendasvikum í síauknum mæli á undanförnum árum. Þeirri gerð tölvuglæpa er ekki unnt að verjast með tæknilausnum, heldur þarf forvarnir og árverkni til.

Af því tilefni efna Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) morgunfundar um forvarnir gegn stjórnendasvindli og tölvuglæpum, föstudaginn 23. febrúar, á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til 10.00.

Þar munu Hákon Åkerlund og Guðmundur Örn Ingvarsson, öryggissérfræðingar Landsbankans, fjalla um einkenni slíkra glæpa og viðbrögð við þeim.