Álit Friðriks Más Baldurssonar, Jóns Steinssonar og Yngva Arnar Kristonssonar á skýrslu Seðlabankans um framtíð peningastefnunnar verða kynnt á málstofu í Háskóla Íslands í dag kl 15:00. Í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu segir að sérfræðingarnir hafi verið fengnir til þess að skila álitum til þess að örva umræðu um framtíðarstefnu í peningamálum.

Álit sérfræðinganna má nálgast á vefsíðu ráðuneytisins .

Fréttatilkynning efnahags- og viðskiptaráðuneytisins:

„Mótun peningastefnu til framtíðar verður eitt viðamesta verkefni efnahagsstjórnunar á Íslandi næstu misserin. Í desember síðastliðnum skilaði Seðlabanki Íslands skýrslu til efnahags- og viðskiptaráðherra um peningastefnu eftir höft. Til þess að örva umræðu um framtíðarstefnu í peningamálum fékk efnahags- og viðskiptaráðuneytið þrjá sérfræðinga í peningamálum, Friðrik Má Baldursson, Jón Steinsson og Yngva Örn Kristinsson, til þess að skila álitum á skýrslu Seðlabankans. Álitin voru unnin óháð hvert öðru og er ætlað að mynda grunn víðtækrar umræðu um framtíð peningastefnunnar. Álitin verða kynnt á málstofu í Háskóla Íslands 12. apríl kl. 15.00 og verða almennar umræður í kjölfarið.“