Um fjörutíu sérfræðingar frá EFTA ríkjunum fjórum og Kanada taka þátt í viðræðum um fríverslunarsamning EFTA og Kanada sem fram fara í Reykjavík í dag og á morgun. Á fundunum eru viðskipti milli Kanada og EFTA til umræðu.

Einnig var í dag rætt hvort ástæða væri til að hefja á næstunni viðræður um að endurskoða og víkka út fríverslunarsamninginn svo hann taki einnig til þjónustuviðskipta, opinberra innkaupa og hugverkaverndar auk fleiri þátta.

Fastafulltrúi Íslands gagnvart EFTA, Martin Eyjólfsson, sendiherra, leiðir viðræðurnar fyrir hönd EFTA ríkjanna.