Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ hóf í síðustu viku mánaðarlanga fundarferð um landið. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ.

Gylfi mun funda með stjórnum flestra þeirra rúmlega 50 stéttarfélaga sem eiga aðild að ASÍ.

„Endurskoðun kjarasamninga fer fram í janúar 2013 og eru blikur á lofti varðandi forsendur þeirra samninga,“ segir í frétt ASÍ um fundarferðina. Ferð Gylfa líkur í lok september en um miðjan október er 40. þing Alþýðusambands Íslands.