Gera má ráð fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður taki lengri tíma en skemmri, að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins. Hann sagði í samtali við RÚV síðdegis í dag tíma taka að útfæra leiðir fyrir þau mál sem samfélagið stendur frammi fyrir.

Sigmundur og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, funduðu í Alþingishúsinu í dag. Sigmundur sagði viðræðurnar ganga vel.