Politica, félag stjórnmálafræðinema í Háskóla Íslands heldur fund  annað kvöld um valdatíð Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóra.

Framsögumenn á fundinum verða Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri-grænna sem setið hefur á alþingi frá 1995, Vilhjálmur Egilsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins 1991-2003 og núverandi rektor Háskólans á Bifröst og Hannes H. Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.

Fundurinn verður haldinn í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísindadeildar, og verður fundurinn haldinn á morgun, fimmtudag, kl. 19.30.