Nafnið á götu getur oft spilað stórt hlutverk í markaðssetningu eignar að sögn fasteignasala sem eru sammála um að sérstök götunöfn hjálpi til þegar selja á eign, þó nafnið eitt og sér sé auðvitað ekki nóg. Furðuleg götunöfn eru til umfjöllunnar á áströlsku vefsíðunni News.com.au .
Hugsanlega eru margir til í að búa í Richman Drive í þeirri von um götunafnið hjálpi til næst þegar þeir velja sér lottótölur.
Síðan er spurning hvort það þyki nógu töff að búa í götu sem heitir Cuddle Court og vera til dæmis handrukkari.