Seðlabanki Íslands veitti hluthöfum Össurar í gær heimild til að flytja hlutabréfaeign sína í fyrirtækinu af íslenska markaðnum yfir á þann danska, hafi þeir eignast bréfin fyrir 1. nóvember síðastliðinn. Össur er tvíhliða skráð í Danmörku og á Íslandi.

Það vekur nokkra furðu að Seðlabankinn skuli veita slíka heimild án þess að hún sé kynnt opinberlega af bankanum með rökstuðningi - enda verið að gera ákveðnum hópi fjárfesta kleift að koma fjármunum sínum úr landi. Þetta segir í Markaðspunkti greiningardeildar Arion banka.

Fjögur önnur félög tvískráð

„Ef til vill væri hægt að líta á þetta sem einn lið í því ferli að afnema höftin en þá er það skrýtið að þessi heimild skuli aðeins eiga við Össur eitt fyrirtækja, en fjögur önnur félög eru með tvíhliða skráningu. BankNordik, Atlantic Petroleum og Atlantic Airways eru skráð í Kauphöllina hérna heima ásamt því að vera skráð í dönsku kauphöllina.

Fjórða félagið er Century Aluminum en það er skráð hérna heima og einnig á Nasdaq. Athyglisvert verður að sjá hvort skráning annarra félaga í Kauphöllinni (sem eru tvískráð) fái í framhaldi sömu meðferð. Að öðrum kosti verður fróðlegt að sjá rökstuðning Seðlabankans fyrir því að gefa hluthöfum þessa einstaka fyrirtækis undanþágu frá fjármagnshöftunum en ekki öðrum.“

Seljanleiki hérlendra bréfa minnkar

„Samkvæmt núgildandi gjaldeyrislögum er skilaskylda á þeim gjaldeyri sem innlendum aðilum áskotnast ef þeir ákveða að selja umrædd hlutabréf. Hinsvegar er innlendum fjárfestum heimilt að endurfjárfesta söluverðmætinu erlendis innan tveggja vikna.“ [leiðrétt - sjá tengda frétt]

„Að því gefnu að fjárfestar flytji bréf sín út að einhverju marki (sem verður að teljast líklegt), mun seljanleiki hlutabréfa í félaginu hérlendis verða minni en áður, þar sem færri hlutir standa eftir hérlendis. Fyrir innlenda fjárfesta ætti félagið því ekki að vera eins spennandi kostur og það var jafnvel áður - nema Seðlabankinn tilkynni svo síðar meir enn nýja dagsetningu fyrir hluthafa að færa bréf sín út. Sambærileg undanþága fyrir hin fjögur félögin sem hafa tvíhliða skráningu myndi draga enn frekar blóð úr markaðnum hér heima og er markaðurinn ekki blóðríkur fyrir,“ segir í morgunkorni.

Tengist vandræðagangi Seðlabankans

„Það er erfitt annað en að setja sértæka undanþágu til handa hluthöfum Össurar í samband við þann vandræðagang er ríkir í boðskiptum Seðlabankans við markaðsaðila um afnám fjármagnshaftanna. En undanfarnar vikur hefur nokkuð skort á að talsmenn bankans séu samstíga og samkvæmir sjálfum sér í yfirlýsingum sínum. Sú trú hefur nú grafið sig djúpt hjá markaðsaðilum að í raun og veru sé engin áætlun til staðar um afnám gjaldeyrishaftanna en Seðlabankinn sé aðeins að fálma sig áfram.“