Fylgi Miðflokksins minnkar um rúmlega sex prósentustig og segjast tæplega 6% ætla að kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum Þjóðarpúls Gallup.

Fylgi Framsóknarflokksins eykst á hinn bóginn um nær fjögur prósentustig en ríflega 11% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Eins eykst fylgi Sósíalistaflokks Íslands um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða en rösklega 3% segjast myndu kjósa flokkinn.

Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,2-1,1 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 18% Samfylkinguna, tæplega 12% Vinstri græn, tæplega 11% Pírata og sama hlutfall Viðreisn.

Rösklega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og rúmlega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um eitt prósentustig milli mánaða, en næstum 45% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.