Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um liðlega fjögur prósentustig milli mánaða, en um helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru að marktæk lækkun er á fylgi Viðreisnar sem lækkar um tæplega tvö prósentustig og mælist fylgið svipað og það mældist í maí, en tæplega 9% segjast myndu kjósa Viðreisn færu kosningar til

Alþingis fram í dag. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,5 prósentustig. Tæplega 25% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 17% Samfylkinguna, næstum 14% Pírata, tæplega 11% Vinstri græn, rúmlega 9% Framsóknarflokkinn, tæplega 9% Miðflokkinn, 6% Flokk fólksins og nær 2% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag.

Rúmlega 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og sama hlutfall tekur ekki afstöðu eða neitar að gefa hana upp.