Sjálfstæðisflokkurinn með með 24,4% fylgi samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Morgunblaðið og eru birtar í blaðinu í dag. Fylgið eykst um 5,5% á milli kannana. Framsóknarflokkurinn er enn stærsti flokkurinn þrátt fyrir að fylgi við hann minni. Það mælist 28,1%.

Fylgi Samfylkingarinnar er svipað og í síðustu könnun og mælist nú 12,2%. Fylgi við VG fer úr 8,8% í 9,3%. Björt framtíð fer hins vegar úr 10,9% í 7,4%. Þá eykst fylgi Pírata milli kannana og fer úr 5,6% í 6,3%. Önnur framboð kæmu ekki manni á þing ef niðurstaða kosninganna verður í samræmi við könnunina. Lýðræðisvaktin mælist með 3,3% fylgi og Dögun 3%.

Í Morgunblaðinu segir að fylgisaukning Sjálfstæðisflokks virðist að stærstum hluta sótt til kjósenda sem sögðust styðja Framsókn í seinustu könnun. Í henni sögðust 29,2% svarenda sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í þingkosningunum 2009 ætla að kjósa Framsóknarflokkinn en núna er hlutfall þeirra komið niður í 18,4%. Þá seýna niðurstöður að hlutfall kjósenda Sjálfstæðisflokksins sem ætla að halda tryggð við flokkinn í komandi kosningum hefur aukist úr 56,2%. Hlutfallið er 69,1% nú.