Á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að tapa fylgi heldur Framsóknarflokkurinn þeirri sterku stöðu sem hann hefur haft í könnunum undanfarnar vikur.

Þetta sýnir ný könnun MMR sem birt var í dag um fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 7. til 12. mars.

Þrátt fyrir að vera enn stærsti stjórnmálaflokkurinn mælist Sjálfstæðisflokkurinn nú einungis með 27,2% fylgi sem er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með frá kosningunum vorið 2009. Hæst fór fylgi flokksins í 42% í könnun í desember 2009 en rétt er að hafa í huga að Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 40,6% fylgi í sumar og 37,4% í desember sl. Flokkurinn er því búinn að missa 10% fylgi frá því í desember og um 13% fylgi frá því í sumar.

Framsóknarflokkurinn heldur hins vegar áfram að auka fylgi sitt og mælist nú með 25,9% fylgi. Framsókn mældist með tæplega 15% fylgi í janúar sl. og tæplega 14% fylgi í desember. Flokkurinn hefur því aukið fylgi sitt verulega síðustu mánuði.

Björt framtíð mælist þriðji stærsti flokkurinn með 15,2% fylgi og hefur dalað lítillega frá því í febrúar þegar flokkurinn mældist hæst með tæplega 18% fylgi.

Þá mælist Samfylkingin með 12,4% fylgi og Vinstri grænir með 9,6% fylgi. Samfylkingin fékk 29,8% fylgi í kosningunum vorið 2009 og hefur mest mælst með 21,6% fylgi (í könnunum MMR) í byrjun árs 2010. Flokkurinn mældist með 21% fylgi í október sl. og hefur því verulega tapað fylgi frá þeim tíma, eða um tæp 9%.

Fylgi Vinstri grænna heldur líka áfram að lækka en flokkurinn fékk 21,7% fylgi í kosningunum vorið 2009. Mest hefur flokkurinn mælst með 26% fylgi vorið 2010 en síðan þá hefur fylgi flokksins leitað niður á við í könnunum MMR. Vinstri grænir mældust með um 16% fylgi í september sl. og hefur því misst rúmlega 6% fylgi síðan þá.

Aðrir flokkar mælast undir 5%, en stærstu smáflokkanna svokölluðu mælast Píratar með 3,6% fylgi. Hægri grænir mælast með 2,1% fylgi og Dögun með 1,9% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 26,5% og hefur aðeins tvisvar á kjörtímabilinu mælst lægri í könnunum MMR, í byrjun október 2010 þegar stuðningurinn mældist tæp 23% og í apríl í fyrra þegar stuðningurinn mældist 25,5% .

Um 80% þátttakenda í könnuninni gaf upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,7%), myndu skila auðu (7,8%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,1%).

Fylgi stjórnmálaflokkanna skv. MMR könnun 13.03.13
Fylgi stjórnmálaflokkanna skv. MMR könnun 13.03.13
© vb.is (vb.is)