Mögulegt þykir að fylla losni úr vegg Hafrahvammagljúfurs á móts við Kárahnjúkafoss

Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að eftir að Hálslón fylltist síðsumars hafi vatn farið um yfirfall ofan í Hafrahvammagljúfur og fallið um 90 m háan foss af vesturbrún gljúfursins.

„Gljúfurveggurinn á móti fossinum er mjög sprunginn og er þar sprunga sem liggur samsíða gljúfurveggnum á nokkrum kafla.  Þessi sprunga hefur verið skoðuð m.a. með borunum og fylgst hefur verið með breidd hennar með þar til gerðum mælum.  Engin hreyfing var á sprungunni en þegar fossinn fór að falla í gljúfrið nú í ágúst varð strax vart við hreyfingu sprungunni.  Nú er svo komið að sprungan hefur víkkað um 2 mm frá því að fossinn fór að falla í gljúfrið,“ segir í fréttatilkynningunni.  Það sé því hugsanlegt að bergfyllan framan við sprunguna geti fallið í gljúfrið.

Í tilkynningunni er tekið fram að mannvirki séu ekki í neinni hættu þótt bergfyllan falli, en mikilvægt sé að ferðamenn virði umferðarbann sem verið hefur í gildi á vinnusvæði neðan Kárahnjúkastíflu.