Leyfi hefur fengist fyrir stækkun Hótels Stykkishólms að því er kemur fram í frétt á vef Skessuhornsins. Fyrirhugað er að byggja við hótelið rými fyrir um 28-30 herbergi til viðbótar.

Í frétt blaðsins kemur fram að málið er komið í gegnum kynningarferli og lögformlegt ferli hjá bæjarstjórn og öll leyfi séu fengin. Ekki sé hins vegar á hreinu hvenær af framkvæmdum verði.