Stjórn Atlantic Petroleum hefur ákveðið að sækja um tvöfalda skráningu hlutabréfa félagsins (e. dual listing), þ.e. að félagið verði skráð í annarri kauphöll samhliða skráningu þess í Kauphöll Íslands, segir greiningardeild Kaupþings banka.

Gert er ráð fyrir að skráningin muni eiga sér stað síðar á þessu ári en ekki hefur verið tekin ákvörðun um í hvaða kauphöll það verður, segir greiningardeildin.

?Ný samsetning Úrvalsvísitölunnar tekur gildi á mánudaginn og er Atlantic Petroleum annað af tveimur nýjum félögum sem taka sæti í vísitölunni," segir greiningardeildin.