Sérblaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgdi  Viðskiptablaðinu í dag.  Í blaðinu er að finna lista yfir þau fyrirtæki, sem standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri.

Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2019 og 2018 en rekstrarárið 2017 er einnig notað til viðmiðunar. Þau þurfa að hafa skilað jákvæðir afkomu árin 2019 og 2018 og tekjurnar þurfa að hafa verið yfir 30 milljónir króna hvort ár. Ennfremur þurfa eignir fyrirtækjanna að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2019 og 2018. Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Þessu til viðbótar er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.100 fyrirtæki á listann eða um 2,8% fyrirtækja landsins.

Auk lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki eru í blaðinu fjölmörg viðtöl, greiningar og fróðlegt talnaefni.

Blaðið er opið öllum og er hægt að nálgast pdf-útgáfu hér .