Sérblaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgir Viðskiptablaðinu í dag. Í blaðinu er að finna lista yfir þau fyrirtæki, sem standa upp úr á Íslandi og eru þar með öðrum til fyrirmyndar í rekstri.

Til þess að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2020 og 2019 en rekstrarárið 2018 er einnig notað til viðmiðunar. Þau þurfa að hafa skilað jákvæðir afkomu árin 2020 og 2019 og tekjurnar þurfa að hafa verið yfir 30 milljónir króna hvort ár. Ennfremur þurfa eignir fyrirtækjanna að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2020 og 2019 . Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Þessu til viðbótar er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Að þessu sinni komast ríflega 1.019 fyrirtæki á listann eða um 2,2% fyrirtækja landsins.

Auk lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki eru í blaðinu fjölmörg viðtöl, greiningar og fróðlegt talnaefni.

Blaðið er opið öllum og er hægt að nálgast pdf -útgáfu hér .