Það er mjög vinsælt að fyrirtæki panti ísvagninn til sín eða þá ís og sendi heim til starfsmanna sinna að sögn Jóns Jóhannssonar, framkvæmdastjóra ísgerðarinnar Skúbb.

,,Með þessu vilja fyrirtæki gleðja starfsmenn sérstaklega á erfiðum tímum eins og verið hefur undanfarnar viku vegna COVID-19. Ég hef heyrt að þetta hafi mælsti vel fyrir hjá starfsmönnum fyrirtækja enda góður glaðningur að fá ís heim í stofu. Við verðum líka með ísvagninn á ferðinni núna í sumar og heimsækjum fyrirtæki. Þá er haldin ísveisla í fyrirtækinu sem skapar alltaf skemmtilega stemmningu. Þá er mjög vinsælt að fá ísvagninn í veislur heima hjá fólki, þá afmælisveislur, giftingar eða útskriftir" segir Jón.

Skúbb býr til handgerðan ís frá grunni sem er án allra aukaefna. ,,Við notum aðeins lífræna mjólk frá Bíó Bú. Úrvalið okkar samanstendur af handgerðum ís, íslokum, ís refum, ís sósum, ístertum, smákökum og fl. Við notum alvöru hráefni við gerð íssins sem gerir bragðið ósvikið, ferskt og engu líkt. Við bjóðum upp á fjölmargar bragðtegundir af mjólkur ís, sorbet og vegan ís. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gott vegan úrval og hefur vegan ísinn okkar slegið í gegn. Brauðformin okkar eru alltaf vegan. Þá erum við nýbyrjuð að bjóða upp á sykurlausan mjólkurís. Við erum afar stolt af því Reykjavík Grapevine hefur síðustu þrjú ár valið ísinn okkar þann besta," segir Jón. Skúbb ísinn fæst einnig í verslunum Hagkaups, Nettó og Iceland. Þá verður boðið upp á ísinn okkar hjá Olís einnig á næstu dögum" segir hann.

Skúbb ákvað að bjóða upp á heimsendingu á ís í mars þegar COVID-19 var nýbyrjað. ,,Það hefur verið nóg að gera að keyra ís, bragðarefi og ístertur í fyrirtæki og heim til fólks. Allar pantanir fara fram í gegnum heimasíðu okkar. Þar má sjá allt úrvalið sem við bjóðum upp á. Það er mikið pantað af ref í heimsendingunni en einnig ís og ístertum," segir Jón ennfremur.