Fleiri sóttu um atvinnuleysisbætur í Bandaríkjunum í síðustu viku en búist var við. Þetta munu vísbendingar um að staða á vinnumarkaði sé að versna, að mati Bloomberg-fréttaveitunnar. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er enn yfir 8%.
Meðalspá Blooomberg hljóðaði upp á að 375.000 nýskráningar. Þær reyndust hins vegar 70.000 fleiri, samkvæmt upplýsingum bandarísku vinnumálastofnunarinnar, sem birtar voru í dag.
Bent er á í umfjöllun Bloomberg, að fyrirhugaðar skattalagabreytingar sem eiga að taka gildi vestanhafs eftir næstu áramót valdi því að fyrirtæki halda að sér höndum og hafi dregið úr nýráðningu á sama tíma og dregið hafi úr uppsögnum.