Á Viðskiptaþingi sem haldið var á miðvikudaginn í síðustu viku opnaði Viðskiptaráð á vef sínum svokallaða Fyrirtækjagátt, þar sem safna á miðlægt nokkrum grunnupplýsingum um rekstur stærstu fyrirtækja landsins. Gáttin, sem er afurð Umbótaþings ráðsins, hefur þann megintilgang að auka gagnsæi í viðskiptalífinu og hvetja fyrirtæki um leið til að efla upplýsingagjöf.

Þetta kemur fram á vef Viðskiptaráðs og segir að áhersla Umbótaþingsins hafi ekki verið að ástæðulausu, eins og reynslan hefur sýnt.

„Ásýnd atvinnulífsins, hér heima og erlendis, ræðst að stórum hluta af vilja fyrirtækja til að upplýsa um helstu atriði í sínum rekstri. Á þessum upplýsingum byggja fjárfestar ákvarðanir, fjölmiðlar umfjöllun, almenningur afstöðu og stjórnvöld aðgerðir sínar. Slök skil á lykilupplýsingum byrgja aðilum sýn á stöðu og þróun atvinnulífsins og eru því tilefni samskiptaörðugleika og vantrausts. Fyrirtækjagáttinni er ætlað að stuðla að bættum vinnubrögðum, auka gagnsæi og trúverðugleika.

Skráning í gáttina er rafræn og er möguleg allt árið um kring og fyrirtæki hafa einnig kost á að uppfæra veittar upplýsingar hvenær sem er. Gáttin er þó gefin út með formlegum hætti þegar lögbundnum fresti til að skila ársreikningi er lokið. Rétt er að taka fram gerð er sú krafa að neðangreind gögn séu gerð aðgengileg í gegnum Fyrirtækjagáttina, en þau fyrirtæki sem gera flest þeirra aðgengileg verða titluð Forystufyrirtæki gáttarinnar.

Þessar upplýsingar eru:

  • hvort fyrirtækin hafi skilað ársreikningi
  • hvernig forystusveit (stjórn og/eða framkvæmdastjórn) þeirra er skipuð
  • hvort stjórn hafi samið starfskjarastefnu og starfsreglur
  • hvort stjórnháttaryfirlýsing hafi verið útbúin.

Innan gáttarinnar er jafnframt að finna allskyns fróðleik fyrir stjórnendur að kynna sér, s.s. gagnaveitur á sviði stjórnarhátta, löggjöf, námsskeið innan háskóla hérlendis o.fl. Þá er stefnt að því að á gáttinni verði að finna yfirlit yfir viljuga einstaklinga sem hafa reynslu af stjórnarstörfum og/eða lokið hafa námsskeiðum á sviði stjórnarhátta fyrirtækja og hafa áhuga á að taka að sér stjórnarstörf.

Rétt er að taka það fram að gáttin er enn í vinnslu, en stefnt er að því að fyrsta formlega opnun hennar verði núna í haust. Næstu mánuðir verða því nýttir til að vekja athygli á framtakinu, fjölga fyrirtækjum í gáttinni, afla samstarfsaðila og um leið laga tæknilega annmarka og annað sem þarfnast lagfæringar,“ segir í frétt Viðskiptaráðs.

Fyrirtækjagáttin .