Höfuðstöðvar Byr
Höfuðstöðvar Byr
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Fyrri hluta söluferlis á nýju hlutafé í Byr hf. er nú lokið, að því er kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Byrs. Þar segir að þeim sem valdir hafa verið til að halda áfram í ferlinu verður tilkynnt um að það í dag. Gert er ráð fyrir að endanleg niðurstaða liggi fyrir um miðjan næsta mánuð.

„Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboði rann út fimmtudaginn 16. júní. Í ljós kom að töluverður áhugi er hjá fjárfestum á að koma að bankanum. Nokkur óskuldbindandi tilboð bárust. Þeim tilboðsgjöfum sem valdir hafa verið til að halda áfram í ferlinu og taka þátt í seinni hluta þess verður tilkynnt um það í dag, mánudaginn 20. júní. Gert er ráð fyrir að endaleg niðurstaða söluferlisins liggi fyrir um miðjan júlímánuð,“ segir í tilkynningu.