Peter Owen, fyrrum stjórnarformaður Silverjet og aðalforstjóri XL Leisure Group (sem var áður í eigu Eimskipafélagsins) er talinn hafa náð samkomulagi við lánardrottna sína sem forðar honum frá gjaldþroti og opnar honum leið á ný inn í ferðaiðnaðinn ef hann kýs svo.
Þá var tilkynnt í síðasta mánuði að Phil Wyatt, stofnandi XL Leisure, væri kominn til starfa í ferðamálum á ný, innan við hálfu ári eftir hrun fyrirtækisins. Í blaðinu Independent on Sunday segir að Wyatt hafi eignast 50% hlut í Viking Airlines í gegnum félagið BPI Iceland, en auk hans standi Halldór Sigurðsson, fyrrum fjármálastjóri XL og Magnús Stephensen fyrrum forstjóri XL að nýja fjárfestingarfélaginu að baki Viking Airlines.