Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings banka hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings að undanförnu um óeðlilegar millifærslur úr Kaupþingi banka til einstaklinga og félaga í eigendahópi Kaupþings.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Engir fjármunir hafa verið færðir með óeðlilegum eða ólögmætum hætti úr sjóðum bankans, hvorki til eigenda hans né annarra. Enginn hagnaður hefur orðið til vegna sérstakra samninga við valinn hóp viðskiptavina bankans eða eigenda.

Fyrrum stjórnendur eru þess fullvissir að starfsemi bankans hafi alla tíð verið innan þess ramma sem lög og reglur um rekstur hans hafa kveðið á um.

Þeim rannsóknum sem nú standa yfir á starfsemi bankans er því fagnað og vonandi er að til þeirra verði vandað í hvívetna til þess að hið sanna um starfsemi bankans leysi tilhæfulausar sögusagnir sem allra fyrst af hólmi.