Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group hefur verið ráðinn til fjármálafyrirtækisins Gamma. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Jón hóf á sínum tíma störf árið 2005 hjá FL Group, fyrst sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs. Síðar tók hann við starfi aðstoðarforstjóra og loks forstjóra.

Síðustu 2 árin hefur Jón rekið eigið ráðgjafafyrirtæki en hefur nú hafið störf hjá Gamma. Fyrirtækið rekur verðbréfasjóði og veitir fjármálaráðgjöf.