Stefán Ágúst Magnússon er orðinn eigandi og framkvæmdastjóri Ísbúðar Vesturbæjar sem rekur þrjár ísbúðir, á Hagamel, Grensásvegi og Fjarðargötu í Hafnarfirði. Stefán starfaði áður sem sérfræðingur hjá MP banka og þar áður var hann framkvæmdastjóri Icelandic Water Holdings. Hann starfaði hjá Eimskipum frá árinu 2002 til 2008 og síðast sem forstjóri félagsins. Stefán lauk námi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og útskrifaðist með kandídatsgráðu í fjármálum og reiknishaldi frá Copenhagen Business School árið 1997.