Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP, banka var dæmdur í eins árs fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir hlutdeild sína að svokölluðu Exeter-máli. Þar með snýr Hæstiréttur við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði sýknað Styrmi.

Exeter málið snýst um ríflega eins milljarðs króna ólöglegar lánveitingar Byrs til félagsins Exeter Holding til kaupa á stofnfjárbréfum í Byr, meðal annars af MP banka, Jóni Þorsteini Jónssyni og félagi í eigu Ragnars Z. Guðjónssonar. Þeir Jón Þorsteinn og Ragnar höfðu áður verið dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi hvor fyrir umboðssvik vegna aðildar að málinu.

Styrmir Þór var dæmdur fyrir peningaþvætti, fyrir að hafa sem forstjóri MP banka látið bankann taka við fé sem hann átti að vita að hefði skilað sér til bankans með umboðssvikum.

Hæstiréttur segir að vitneskja Styrmis um tiltekin atriði, menntun hans og þekking á starfsemi banka og annarra lánastofnana hafi „leitt til þess að honum hefði ekki getað dulist að lánveiting Byrs hefði verið ólögmæt og til þess fallin að valda sparisjóðnum verulegri fjártjónshættu.“

Aftur á móti segir í dómnum að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að Styrmir hafi ekki hagnast persónulega á brotinu.