Mærks Mc-Kinney Møller, fyrrverandi forstjóri danska skipaflutningarisans A.P. Möller-Mærsk, lést í dag. Hann var 98 ára og með þekktustu athafnamönnum í dönsku viðskiptalífi.

Hann var sonur Arnolds Peter Møller, sem stofnaði skipaflutningafyrirtækið ásamt föður sínum, Peter Mærsk-Møller, árið 1904.

Mærsk Mc-Kinney Møller varð meðeigandi að fyrirtækinu árið 1939 og tók við forstjórastólnum af föður sínum árið 1965. Hann lét af störfum fyrir nítján árum síðan en sat sem stjórnarformaður í tíu ár til viðbótar. Hann stóð upp úr honum undir lok árs 2003, níræður að aldri.