Einn af stofnendum internetrisans Yahoo! hefur sagt af sér sem stjórnarmaður í fyrirtækinu. Jerry Yang stofnaði fyrirtækið ásamt David Filo árið 1995 og hefur setið í stjórn þess frá þeim tíma. Þá var hann forstjóri fyrirtækisins á árunum 2007 til 2009.

Yang sagði einnig af sér stjórnarsetu í Yahoo Japan Corporation og Alibaba Group Holding, sem eru tengd Yahoo!.

Afsögn Yang kemur á sama tíma og nýr forstjóri, Scott Thompson, tekur við stjórnartaumunum hjá Yahoo!