Fyrrverandi öldungadeildarþingmaður á bandaríska þinginu hefur verið handtekinn í Zimbabve fyrir ólöglega vörslu kláms.

Þingmaðurinn, Mel Reynolds, var eitt sinn efnilegur þingmaður í Demókrataflokknum en lét af embætti árið 1995 eftir að hafa verið sakfelldur fyrir kynferðisbrot, að trufla friðhelgi einkalífsins og að hafa undir höndum barnaklám.

Lögreglan i Zimbabve veitti honum athygli vegna þess að talið var að hann væri með ógilt vegabréf. Reynolds hafði verið í Zimbabve síðan í nóvember.