Flugfélagið PLAY flaug í fyrsta sinn til Aþenu, höfuðborgar Grikklands, í morgun. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem beint áætlunarflug er á milli Íslands og Aþenu.

Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að upphafleg áætlun hafi verið að PLAY myndi fljúga til Aþenu frá júní og út október. Vegna mikillar eftirspurnar eftir ferðum með PLAY til Aþenu var hins vegar ákveðið að framlengja áætlunarflugið til janúar 2024.

„Áhuginn er ekki einungis frá Íslendingum heldur einnig Grikkjum sem vilja fljúga með PLAY til Íslands og eiga þá einnig möguleika á tengiflugi til áfangastaða flugfélagsins í Norður-Ameríku.“

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir áætlunarflugið stórkostlegur áfangi og er það mikið gleðiefni að finna fyrir þeim áhuga sem viðskiptavinir hafi á ferðin til og frá Grikklands.

„Við sáum fyrir okkur stór tækifæri í tengiflugi á milli Aþenu og Norður-Ameríku og sá grunur reyndist réttur. Og það er ekki síður gaman að geta boðið sólþyrstum Íslendingum upp á ferðum til þessarar stórkostlegu borgar yfir vetrartímann,“ segir Birgir.