Auðlindafélagið Amaroq Minerals, sem hét áður AEX Gold, var skráð á íslenska First North-vaxtarmarkaðinn í morgun. Hlutabréf Amaroq Minerals eru fyrir skráð í TXS Venture kauphöllinni í Kanada og á AIM markaðnum í London.

Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals var stofnað árið 2017 með megináherslu á að finna gull og aðra verðmæta málma á Suður-Grænlandi, rannsaka og þróa þau svæði sem málma er að finna og vinna þessa málma úr jörðu.

Verðmætasta eign Amaroq er Nalunaq svæðið, þar sem undirbúningur að vinnslu er langt kominn og vinnsluleyfi sem nær m.a. yfir Nalunaq gullnámuna sem þar var fyrir. Amaroq er einnig með leitar- og vinnsluleyfi á svæði sem nær yfir 7.866,85 ferkílómetra, það stærsta á Suður-Grænlandi og nær það yfir tvö þekkt gullbelti á svæðinu.

„Það er okkur heiður að Amaroq sé skráð á Nasdaq First North á Íslandi,“ er haft eftir Eldi Ólafssyni, forstjóra og stofnanda Amaroq Minerals í tilkynningu.

„Við erum mjög ánægð með frábærar viðtökur í fjármögnuninni sem lauk í undanfara skráningarinnar, þar sem bæði íslenskir og erlendir fjárfestar tóku þátt þrátt fyrir krefjandi markaðsaðstæður. Við bjóðum nýja hluthafa velkomna um borð. Þessi skráning gegnir mikilvægu hlutverki í næsta áfanga uppbyggingar okkar á Grænlandi og mun sýnileiki félagsins á Íslandi verða til þess að styrkja tengsl Íslands og Grænlands.

Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland:

„Það er okkur mikil ánægja að bjóða Amaroq Minerals velkomið á Nasdaq First North Growth Market Iceland. Skráning Amaroq markar fyrstu skráningu auðlindafélags á Íslandi sem skapar meiri fjölbreytni á markaðnum og gefur íslenskum fjárfestum tækifæri til að fjárfesta í nýjum og áhugaverðum geira. Við hlökkum til að fylgjast með vaxtarferli Amaroq og erum ánægð með að geta stuðlað að þeim aukna sýnileika og vitund fjárfesta sem fylgir þessari skráningu.“

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq hringdi bjöllunni ásamt stjórnendum félagsins, Magnús Harðarsyni, forstjóra Nasdaq Iceland, og ráðgjöfum Amaroq í skráningarferlinu frá Landsbankanum, Arion banka og Logos.
© Aðsend mynd (AÐSEND)