Alþjóðlega Ofurtröllamótið, Super Troll Ski Race, verður haldið á Tröllaskaga á föstudaginn langa en þetta er fyrsta fjallaskíðamótið sem haldið verður hérlendis. Það er Skíðafélag Siglufjarðar sem stendur að mótinu. Mótið hefst í Fljótum og verður gengið frá Heljartröð yfir Siglufjarðarskarð í átt að Illviðrishnjúki, meðfram skíðasvæðinu í Skarðsdal og niður til Siglufjarðar. Keppnisleiðin er krefjandi og því mikil ögrun fyrir þátttakendur. Keppt verður í karla- og kvennaflokki.

Þau sem sigra fá í verðlaun þyrluskíðun í boði Eleven Experience og Orra Vigfússonar sem eru aðalbakhjarlar þessa móts. „Ofurtröllamótið á Tröllaskaga verður alþjóðlegt og er tilgangur þess meðal annars að vekja athygli umheimsins á líkamsrækt í náttúrulegu umhverfi og vetraríþróttum á Tröllaskaga, hreinleika svæðisins svo og sjálfbærni í óspilltri náttúru. Loks er mótið haldið í fjáröflunarskyni fyrir Skíðafélag Siglufjarðar,“ segir í tilkynningu.