Fyrstu flug easyJet til Íslands er væntanlegt til landsins klukkan 8:31 en samkvæmt áætlun átti vélin að lenda 8:40. Fyrsta flug easyJet til landsins er því á áætlun en flogið er Luton flugvelli í London. EasyJet kemur til með að fljúga til Íslands þrisvar í viku héðan í frá.

Upphaflega stóð til að easyJet flygi til Íslands frá London yfir sumartímann en sökum mikillar eftirspurnar kemur easyJet til með að fljúga til Íslands næsta vetur.