Fyrsta H&M verslunin á Íslandi mun opna dyr sínar í Smáralind í ágúst 2017. Verslunin, sem verður á tveim hæðum, mun vera um 3.000 fermetrar að stærð að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Áður hefur komið fram að H&M hyggist einnig opna í Kringlunni og Hafnartorgi sem er nú í uppbyggingu.

Ætla að standa undir væntingum

„Við erum í skýjunum yfir því að vera loksins að opna verslun á Íslandi! H&M snýst um innblástur og persónulegan stíl og því er það okkur mikill heiður að geta boðið íslenskum viðskiptavinum upp á allar okkar fatalínur,” segir Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi.

Við vitum að lengi hefur verið beðið eftir komu H&M til Íslands og okkur hlakkar mikið til að geta hrifið með okkur þjóðina og staðið undir væntingum. Þar að auki erum við gífurlega stolt af nýráðnu samstarfsfólki okkar í H&M á Íslandi - við höfum fundið frábært teymi fyrir verslanir okkar.“

Fyrsta íslenska H&M verslunin verður staðsett í Smáralind og mun bjóða upp á breitt úrval af nýjustu trendum, klassískri og tímalausri tísku og veita þannig viðskiptavinum innblástur til að skapa sinn eigin persónulega stíl.

Allar fatalínur H&M í boði

Allar fatalínur H&M verða fáanlegar í versluninni, þar á meðal dömu- og herrafatnaður, barnaföt, skór, aukahlutir, undirföt og snyrtivörur. Auk þess mun verslunin fá sérstakar línur í sölu eins og H&M Studio og Conscious Exclusive.

H&M opnar á Íslandi með haustlínunum. Í dömulínunni mætast götutíska og fágaður klæðskerastíll í bland við kvenlegar línur sem skapa kraftmikið en heillandi yfirbragð. Við munum sjá svipmiklar yfirhafnir, þægilega kjóla, klæðilegar peysur, fjölbreytileg sett, tilkomumikið skart og fágaða litapallettu.

Herralínan er tæknileg en á sama tíma yfirveguð og er hönnunin undir áhrifum frá bæði fjallendi og borgarlífi. Í efnunum má sjá sterkar andstæður og sérstök áhersla er lögð á samruna klassískrar hönnunar og samtímatísku.