Fyrsta loðnan sem veiðst hefur hér við land náðist í bullandi brælu austur af landinu í gærkvöldi. Síldarvinnslan á Neskaupstað greinir frá þessu á vef sínum .

Það voru 20-30 tonn af loðnu sem grænlenska skipið Polar Amaroq veiddi, en það er fyrsta loðnan sem veiðist hér við land frá árinu 2018.

Síldarvinnslan segir að tekið hafi verið eitt hol í leiðindaveðri, og á heimasíðunni er rætt við Sigurð Grétar Guðmundsson skipstjóra:

„Við prufuðum að kasta í gær rétt áður en dimmdi en veðrið var afskaplega leiðinlegt. Við leituðum síðan í nótt en það er bara ekkert veiðiveður. Við fengum um 20-30 tonn af stórri loðnu en það er töluverð áta í henni. Við munum frysta aflann um borð. Það er bullandi bræla og ég held að sé ekkert annað að gera en að leita vars,“ segir Sigurður.

Útgefinn loðnukvóti grænlenska skipsins er 1155 tonn.