Actavis hefur sett verkjalyfið Oxycodone á markað í Bandaríkjunum á ný. Oxycodone er fyrsta lyfið sem framleitt er í endurbættri verksmiðju félagsins í Little Falls í New Jersey í kjölfar skoðunar bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar (FDA) að því er segir í tilkynningu félagsins. Eins og fram kom í fréttum fyrir áramót samdi Actavis í Bandaríkjunum við FDA í árslok 2008 um framhald á lyfjaframleiðslu í einni af verksmiðjum félagsins í New Jersey. Þetta var í kjölfar þess að Actavis í Bandaríkjunum innkallaði öll lyf frá verksmiðjunni í ágúst 2008, að eigin frumkvæði og í fullu samstarfi við FDA.   Með samkomulaginu í desember féllst Actavis í Bandaríkjunum á að lyf frá verksmiðjunni færu ekki í dreifingu fyrr en félagið hefði sýnt fram á að ákveðnum umbótum væri lokið, verksmiðjan uppfyllti skilyrði FDA um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð (cGMP) og hefði staðist nýja úttekt FDA á verksmiðjunni. Þessum skrefum er nú lokið og fyrsta lyfið er komið á markað, Oxycodone 15mg og 30 mg töflur.   "Verksmiðjan í Little Falls hefur öll verið endurnýjuð, farið hefur verið yfir alla ferla og skipt um alla stjórnendur í verksmiðjunni. Oxycodone er lyf sem við höfum langa og góða reynslu af því að framleiða svo það var eðlilegt að það væri fyrst í röðinni eftir breytingar. Það hefur líka verið skortur á þessu lyfi á Bandaríkjamarkaði að undanförnu svo salan fer afar vel af stað. Nú verður næstu skrefum fylgt, í samstarfi við FDA, eins og fram kemur í samkomulaginu. Við gerum ráð fyrir að önnur lyf frá Little Falls verksmiðjunni komi á markað á næstu mánuðum," er haft eftir Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttur, aðstoðarforstjóri Actavis í tilkynningu. Lyf frá Actavis í Bandaríkjunum eru ekki flutt til Íslands og hefur þetta því engin áhrif á Íslandi.