RTS verkfræðistofan Grensásvegi 3 í Reykjavík hefur fengið faggilta gæðavottun samkvæmt ISO 9001:2000 staðlinum fyrst íslenskra verkfræðistofa á rafmagnssviði. Það var breska vottunarfyrirtækið BSI (British Standard Institute) sem nú hefur opnað starfsstöð á Íslandi sem tók út og vottaði gæðakerfi RTS. Gæðakerfi RTS er ekki bundið við einstaka starfssvið heldur tekur það til allra þátta í starfsemi verkfræðistofunnar.
?Með því að fá faggilta vottun á gæðakerfi RTS er langþráðum áfanga náð sem mun styrkja fyrirtækið í þeirri útrás sem framundan er og höfum við einsett okkur að auka gæði þjónustunnar enn frekar. Gæðakerfið sem nú hefur verið vottað af viðurkenndum faggiltum aðila tryggir að viðskiptavinir okkar munu ávallt fá þá þjónustu sem þeir vænta og að sú þekking og reynsla sem stofan og starfsfólk hennar býr yfir nýtist viðskiptavinum okkar á hagkvæman hátt" segir Brynjar Bragason framkvæmdastjórni RTS.
Brynjar segir að vottað gæðakerfi sé fyrsti áfangi í samfeldu ferli og að hjá RTS geri menn sér fulla grein fyrir að það er áframhaldandi vinna fólgin í að þróa og viðhalda gæðakerfinu Hann bendir á að ISO 9001: 2000 staðallinn geri kröfu um að fyrirtækið mæli reglulega árangur og ánægju viðskiptavina með þjónustuna en það gefi þeim dýrmætar upplýsingar um frammistöðu RTS á hverjum tíma.
RTS verkfræðistofa er leiðandi verkfræðistofa í ráðgjöf og þjónustu á rafmagnssviði og sinnir verkfræðistörfum bæði innanlands og erlendis. RTS var stofnuð í ársbyrjun 1988 og eru starfsmenn yfir 30, þar af starfa þrír á starfsstöðvum RTS á Austurlandi.
Það var í mars 2003 sem ákveðið var að taka í notkun gæðastjórnunarkerfi samkvæmd ISO 9001:2000 og var Magnús Matthíasson ráðinn gæðastjóri til að hafa umsjón með verkefninu. Ástæða þess að ISO 9001:2000 staðallinn varð fyrir valinu er að sögn Brynjars sú að staðallinn hentar mjög vel starfssemi RTS, þar sem hann tekur m.a. á stjórnun fyrirtækisins, verkefnastjórnun og skilgreiningu á þörfum og væntingum viðskiptavina fyrirtækisins. Byrjað var á að setja upp tíma- og kostnaðaráætlun og hefur verið unnið eftir henni síðan. Á síðasta ári var samið við breska fyrirtækið BSI (British Standard Institude) sem er faggilt vottunar-fyrirtæki með starfsstöðvar í fjölmörgum löndum um að það tæki gæðakerfið út. Forúttekt fór fram í janúar 2005 en lokaúttekt var gerð í apríl síðast liðnum og þann 27. júní afhenti Martin Eagle úttektaraðili BSI forráðamönnum RTS skjal til staðfestingar því að gæðakerfi RTS hefði staðist vottun samkvæmt ISO 9001:2000 staðlinum.