Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, veitti í dag Krónunni svansvottun fyrir tvær verslanir, verslun að Akrabraut í Garðabæ og verslun fyrirtækisins í Rofabæ í Árbæ. Frá þessu er greint í frétt á vef Umhverfisstofnunar þar sem segir að „um tímamótaskref er að ræða í sögu umhverfisvottunar hér á landi, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem verslun fær svansvottun“.

„Vottunin er heildræn nálgun á þeim umhverfisávinningi sem má ná af rekstri dagvöruverslana. Þar ber helst að nefna vöruúrval, orkunotkun, úrgangsstjórnun og matarsóun. Einnig er hugað að innkaupum verslananna sjálfra þar sem lögð er áhersla á umhverfisvottaðar vörur og þjónustu,“ segir enn fremur á vef Umhverfisstofnunar og að verslanir krónunnar hafi unnið markvisst samkvæmt þessum viðmiðum.

„Meðal aðgerða sem Krónan hefur gripið til er aukin áhersla er á úrval vara með umhverfisvottun og hefur fyrirtækið auðkennt þær í verslun, auk matvöru með lífræna vottun. Einnig var ráðist í að gera hollari vörur sýnilegri á sama tíma og sælgæti hefur verið fjarlægt af afgreiðslusvæði. Matvörur sem nálgast síðasta söludag eru lækkaðar í verði og settar á svæði merkt „síðasti séns – minnkum matarsóun“. Þá er Krónan einnig í samstarfi við aðila sem koma brauðmeti í áframnýtingu sem dýrafóður. Nýjar verslanir hafa verið hannaðar með orkusparnað að leiðarljósi og umhverfisvænni kælikerfi. Dregið hefur verið úr plastnotkun með því að auka úrval af fjölnota burðarpokum til muna en auk þess voru tekin skref til að færa ferska kjötvöru úr plastbökkum yfir í umbúðir úr aðgreinanlegum pappa og plastfilmu.“

„Við hjá Krónunni erum ákaflega stolt af því að vera með fyrstu matvöruverslanirnar sem fá Svansvottun á Íslandi. Ferlið með Umhverfisstofnun er búið að vera mjög lærdómsríkt og gagnlegt fyrir okkur. Við erum staðráðin í að halda áfram vinnunni og fögnum því aðhaldi sem vottunin veitir okkur. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar og starfsmönnum, sem hafa af jákvæðni og með opnu samtali tekið þátt í þessu ferli með okkur,“ segir Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar.