Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst í fyrstu viku þessa árs á milli vikna. Þannig nam veltan í vikunni 1.198 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 756 milljónum króna.

Rétt er þó að hafa í huga að það var vikan á milli jóla og nýárs sem var nokkuð róleg á markaðnum.

Velta á fasteignamarkaði hefur verið með undarlegu móti síðustu vikurnar fyrir jól. Þannig fór veltan á einni viku um og yfir 5 milljarða tvisvar á síðustu sex vikum ársins og í bæði skiptin nam meðalverð rétt rúmum 100 milljónum króna á hvern samning sem verður að teljast heldur óvenjulegt. Meðalvelta á viku var þó um 1.360 milljónir króna á árinu 2009.

Fyrir vikið hefur fjögurra vikna meðalvelta farið nokkuð úr föstum skorðum miðað við það sem á undan er gengið. Fjögurra vikna meðalvelta nemur nú 2.016 milljónum króna en var í síðustu viku 2.2276 milljónir króna og lækkar því um 260 milljónir króna á milli vikna sem er töluverð sveifla. Fjögurra vikna náði þó hámarki, 3.342 milljónum króna um miðjan desember og hafði þá ekki verið hærri síðan í mars 2008.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 197% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 78% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar á milli vikna eða um 37 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta nú  1.945 milljónum króna en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú aukist um 73% á milli ára en á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 78% á milli ára.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.363 milljónir króna og hækkar um 5 milljónir á milli vikna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.070 milljónum króna og hefur því dregist saman um 34% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 36 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 26 samninga í vikunni áður. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning í vikunni var 33,3 milljón króna, samanborið við 29 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna.