Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn formaður Samtaka hjarta- og lungnaskurðlækna á Norðurlöndunum (Scandinavian Association of Thoracic surgery). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Í samtökunum eiga sæti allir sérfræðingar í hjarta- og lungnaskurðlækningum á Norðurlöndunum og er hlutverk samtakanna að skipuleggja fræðslu- og vísindastarf innan sérgreinarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn forseti í 66 ára sögu samtakanna.

Tómas lauk læknanámi frá Háskóla Íslands árið 1991 og stundaði síðan framhaldsnám í almennum skurðlækningum og hjarta- og lungnaskurðlækningum í Svíþjóð og framhaldsnám í hjartaskurðlækningum við Harvard-háskóla í Boston. Tómas hefur verðið virkur í kennslu og rannsóknum og hefur birt hátt í 200 vísindagreinar og bókakafla, flestar á sviði hjarta- og lungnaskurðlækninga.