Ísfisktogarinn Bergur VE hélt í fyrsta sinn til veiða undir merkjum Bergs-Huginn ehf. á föstudagskvöldið. Frá því í nóvember og til marsloka var togarinn leigður Útgerðarfélagi Akureyringa. Bergur-Huginn er dótturfélag Síldarvinnslunnar en tilgangurinn með kaupunum á Bergi ehf. var að styrkja starfsemina í Vestmannaeyjum. Bergur VE var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1998 og er skipið 569 brúttótonn að stærð og með 1.300 hestafla vél.

Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar en Bergur kom til löndunar í morgun og að því tilefni sló heimasíðan á þráðinn til Páls Steingrímssonar skipstjóra. Páll segir að þokkalega hafi gengið að fiska í túrnum en veður hafi verið til trafala.

„Það var hreint út sagt ógurlega leiðinlegt veður í þessum túr en við vorum á Eldeyjarbanka allan tímann. Stór hluti af veiðislóðinni út af sunnan- og suðvestanverðu landinu hefur verið lokaður vegna hrygningarstopps en það verður opnað aftur á morgun sem betur fer. Við komum með fullfermi eða 60 tonn til löndunar og aflinn er mest ýsa en einnig ufsi, karfi og þorskur. Við reyndum að fá ufsa en hann er brellinn og erfitt að nálgast hann. Það koma ufsaskot hér og þar en þau standa gjarnan afar stutt. Hins vegar er allt fullt af ýsu og gullkarfa. Ýsan er alls staðar og ég er hræddur um ýmsir lendi í vandræðum því úthlutaður ýsukvóti er alltof lítill miðað við magnið sem er á ferðinni,“ segir Páll í viðtalinu við heimasíðuna.

Páll hefur víðtæka reynslu sem skipstjóri og hefur meðal annars stýrt skipum sem gerð hafa verið út til veiða í Barentshafi og við Austur-Grænland frá Þýskalandi, Bretlandi, Póllandi og Portúgal. Hann segir að það sé jákvætt að öðlast víðtæka reynslu og vissulega sé það talsvert annað að veiða á 500-600 tonna togara eins og Bergi og á stærri skipum, en stærsti togarinn sem hann hefur stýrt er um 8.000 tonn að stærð.

Bæði skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu fullfermi í Eyjum í gær en þau héldu til veiða sl. fimmtudag. Gert er ráð fyrir að þau haldi á ný til veiða á föstudaginn.